Leita í fréttum mbl.is
Embla

Dvalartími eða rauntími?

Strákurinn minn er með 9 tíma pláss sem fæsta daga er notað alveg til hins ýtrasta. Það er ekki oft sem hann fer 7:30 og sóttur 16:30.
Það er nefnilega þannig að það er ekki hægt að hafa pláss á mismunandi tímum eftir dögum. Ég t.d. þurfti ekki hafa hann svona seint nema einn dag í viku og síðan þurfti ég að mæta með hann aðra tvo daga snemma. Þetta varð til þess að dvalartíminn sem hann á rétt á og við borgum fyrir er þessi. Þannig að það er ekki víst að þetta séu alveg réttar tölur.

Ég er alveg sammála því að börn ættu að hafa meiri tíma með foreldrum sínum en ef þeir þurfa að vinna 8 tíma vinnudag, síðan keyra og sækja þá verður þetta að vera svona. Leikskóldvölin gerir börnum yfirleitt bara gott, þar er unnið markvisst starf og líka mikill leikur. Lillinn minn þarf allavegana mikið á félagsskapnum og leiknum við aðra krakka að halda, flesta daga ;)

Hinsvegar fór leikskólastjórinn fram á að ég stytti viðveruna hans í vetur vegna þess að ég er í fæðingarorlofi!!! Hvað kemur það málinu við? Ég vil hafa möguleikann áfram á því að hann geti suma daga farið snemma og aðra daga seinna. Þá líka sóttur snemma eða seint eftir behag og hvernig stendur á.

Þannig að 9 tímarnir eru yfirleitt ekki notaðir... á þessum bæ allavegana ;)

 


mbl.is Ræða þarf starfstíma barna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mer finnst nu half faranlegt ad their segi ad born eigi rett a ad vera svona og svona lengi heima hja foreldrum sinum, thegar krofur a vinnumarkadi segja ad foreldrar eigi ad vinna svona og svona mikid. Thad er bara erfitt ad fa allt thetta til ad passa saman finnst mer. Annad hvort ad lata bornin vera lengur, eda stytta vinnudaginn.. Og hversu margir hafa efni a thvi, eda moguleika yfirhofud a ad stytta vinnudaginn sinn?

Jóhanna (IP-tala skráð) 22.9.2008 kl. 07:50

2 Smámynd: Johnny Bravo

Mér finnst þetta alveg fáránleg umræða. Eru leiksskólar ekki besti staður sem barn getur verið á, fullt af leikföngum sem eru þroskandi ásamt háskólamenntuðu fólki sem er að þroska þau.

Sumir þurfa bara að vinna af því að það er tekju missir í kring um fæðingu og dýrt að fá pössun til 2ára aldurs. Fólk er ekki að drekkja sér í vinnu af ganni sínu. Svo er það spurning hvort að tíminn sem er með foreldrum 5 tímar á kvöldi og helgar og sumarfrí sé eitthvað varið í eða foreldrarnir séu bara á rassinum í sófanum án ferðalaga eða áhuga á því sem börnin eru að gera.

Johnny Bravo, 22.9.2008 kl. 13:28

3 Smámynd: Guðrún Vala Elísdóttir

Mín börn hafa alltaf verið á leikskóla með fullan tíma og hefur líkað vel. Auðvitað voru þau stundum sótt fyrr og mættu stundum seinna á morgnana og fengu stundum auka frí um jól og páska.  Ég get ekki séð annað en þau hafi bara komið vel út úr leikskóla, og sennilega betur en grunnskóla.  Hitt sem ég vildi segja er að ég veit um foreldra sem hafa verið að drepast úr samviskubiti út af löngum dvalartíma barna sinna leikskóla, og komu því þannig í kring að vinnu var hliðrað svo hægt væri að stytta tímann.  Hvað gerðist þá? Viðkomandi börn voru að deyja úr leiðindum heima, enginn til að leika við og vildu bara fá að vera á sínum leikskóla eins og hin börnin

Guðrún Vala Elísdóttir, 22.9.2008 kl. 16:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Letilufsa
Letilufsa

Letilufsan heitir Fjóla og reynir eftir fremsta megni að taka sig og lífið ekki of alvarlega... 

Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband